fimmtudagur, júní 28, 2007
miðvikudagur, júní 27, 2007
mjólkmjólkmjólk

Aldrei datt mér í hug að of mikil mjólkurframleiðsla gæti orðið vandamál en ég er gjörsamlega að springa. Veit ekkert hvað ég á að gera, búin að prófa öll ráðin sem brjóstagjafaráðgjafinn gaf mér og ekkert virðist hafa langtíma áhrif. Var að gefa litla að drekka áðan og á meðan lak úr hinu brjóstinu í gegnum gjafabrjóstarhaldaran, bolinn minn, náttgallann hans og samfelluna, það draup........
Það er líka ótrúlega sárt að vera með svona mikla mjólk, get t.d ekki legið á hliðunum og það er vont að hreyfa hendurnar mikið......HHHHHJJJJJJÁÁÁÁLLLLPPPP einhver góð ráð?????
mánudagur, júní 25, 2007
Spennandi dagur í lífi heimavinnandi húsmóður :)
Pampers bleyjur á tilboði og Georg komst inn í Kennó, húrra!!
sunnudagur, júní 24, 2007
laugardagur, júní 23, 2007
vaxtaverkir

þriðjudagur, júní 19, 2007
sunnudagur, júní 17, 2007
Netið loksins komið í lag...húrrahúrra
Við erum búin að vera hálf ómöguleg síðustu vikur því að netið okkar er búið að vera bilað, sorglegt....ég veit :)
En það er svo ótrúlega margt sem gerist hjá svona litlum krílum á stuttum tíma og alveg ömurlegt að geta ekki sett inn myndir og hringt í fjölskylduna og montað sig á skypinu.
En í grófum dráttum það sem er búið að gerast hjá okkur síðustu daga og vikur:
- Amma á Neskaupsstað kom í heimsókn og knúsaði strákinn sinn og okkur alveg fullt. Hann fékk nýjan tripp trapp stól sem er blár og rosa fínn frá Ömmu sinni og afa og ég og Georg fengum ný föt. Litli fékk líka fullt af pökkum frá íslandi, allskonar bangsa frá langömmu sinni og langafa í Hafnafirði sem honum finnst ótrúlega gaman að horfa á.
Þessi dúkka er sérstaklega vinsæl.
- Tóta föðursystir hans kom líka í heimsókn og knúsaði litla alveg fullt. Hann náði meira að segja að æla á hana í fyrsta skipti sem hún hélt á honum...góð fyrstu kynni :) Ótrúlega flott dúkka :)
- Hann byrjaði að brosa alvöru brosi og finnst mamma sín náttúrulega sérstaklega fyndin
- Georg byrjaði að vinna þannig að við erum bara búin að vera tvö saman síðustu daga. Það er búið að vera mjög fínt. Sofum út, förum í göngutúra og höfum það notalegt. Litli er ekki smá góður og sefur allar nætur frá ca. 22 á kvöldin til 6 á morgnana og sefur síðan aftur frá ca. 8 til 11. Engin smá lúxus hjá okkur :)
- Ég og Georg erum bæði búin að segja vinnunum okkar upp þannig að það er ákveðið að við flytjum heim næstu jól!!!
- Að lokum nokkrar myndir af litla á/í nýja leikteppinu sem hann fékk frá langömmu Boggu og eina á leiðinni í bað (sem honum finnst bara orðið nokkuð notalegt).