laugardagur, júní 23, 2007

vaxtaverkir

Litli er aðeins búinn að láta hafa fyrir sér síðustu daga. Hann er búinn að vera mjög pirraður og vill bara hanga á öxlinni á okkur. Áttum alveg einstaklega skemmtilegan dag á föstudag þar sem hann grét og grét og vildi bara hanga á öxlinni á mér, Georg var í sumarveislu á leikskólanum og var ekki komin heim fyrr en um 21 leytið þannig að ég var orðin ansi þreytt í höndunum þegar hann kom. Erfitt með svona lítil kríli að vita ekkert hvað er að og geta ekki hjálpað þeim. En honum líður greinilega aðeins betur núna sem betur fer. Ætlum að bjóða Jóhönnu og Steina í lambalæri og pilsner á morgun, stuð stuð :)

3 Kveðjur:

Anonymous Nafnlaus kvað...

litli snúðurinn
mikið er hann flottur í buxunum:)

18:45

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

ég hlakka svo til að fá ykkur heim. ahh. ég er viss um að hann eigi eftir að vera svo spenntur að hitta mig að hann eigi eftir að æla yfir allt. húrra.

11:25

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Ummm okkur hlakkar ekkert smá til að fá lambalæri og auðvitað að hitta ykkur og eiga smá fullorðinssamræður ;) Svo geta félagarnir leikið smá saman hehe..

16:02

 

Skrifa ummæli

<< Home