laugardagur, maí 26, 2007

Litli kúturinn

er farinn að nota snuð.en samt bara stundum, þegar honum hentar. Stundum verður hann alveg brjálaður ef okkur dettur í hug að setja upp í hann snuð, gæti verið að skapið fylgi háralitnum...veit ekki :)

Okkur finnst tíminn búinn að vera alveg ótrúlega fljótur að líða, litli bráðum að verða mánaðargamall. Dagarnir fara mest í að skipta á bleyjum, svæfa, gefa og fara út að labba. Við erum búin að hafa það ótrúlega gott og litli bara ótrúlega vær og alveg yndislegur....að sjálfsögðu fallegasta barn sem við höfum augum litið ;)
Hann er kominn með smá skap og hikar ekki við að láta foreldra sína heyra það ef hann fær ekki að drekka um leið og hann vaknar eða ef Georg dirfist að strjúka á honum bakið en ekki klappa honum. Hann er algjör kúrikall og finnst ótrúlega gott að láta strjúka sér um hárið og greiða sér og best ef hann fær að drekka um leið.
Honum finnst hinsvegar ótrúlega leiðinlegt að vakna og kvartar og kvartar á meðan. Það ferli tekur svona hálftíma, þar sem hann teygir úr sér og geispar ótrúlega mikið og prumpar enn meira og kvartar og kjökrar.
Meira síðar.

P.s þetta voru minnstu snuðin sem voru til!

6 Kveðjur:

Blogger Erla kvað...

vid søknudum ykkar i dag, i studentsveislunni. En thad hefdi sennilega verid rifist of mikid um thennan yndislega dreng ykkar. Vid hløkkum svo til ad hitta hann.

kærar kvedjur ur Soltuninu.

22:51

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

hæ elskurnar, hann er bara æðislegur og ég tel bara eins hratt niður og ég get þangað til ég get knúsað hann. bara ++++++++++ dagar þangað til, get varla beðið er að fara að leggja
af stað (enda langt að fara)
sakna ykkar mikið.
kveðja amma á norðfirði.

00:18

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

æi. mig langar að hafa ykkur hér. hann er svooooo sætur litli frændi minn.

09:58

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Hann er svo sætur!! Alltaf gaman að skoða nýjar myndir get ekki beðið eftir að fá að knúsa hann :)

Kveðja Magnea

22:57

 
Blogger yanmaneee kvað...

hermes handbags
lebron 17
air jordan
yeezy shoes
balenciaga speed
supreme clothing
supreme
jordan 4
ferragamo belt
nike air max 270

20:20

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

hermes handbags
yeezy boost 700
cheap jordans
golden goose outlet
supreme new york
jordan travis scott
off white clothing
curry 6
off white
fear of god essentials

14:18

 

Skrifa ummæli

<< Home