föstudagur, maí 11, 2007

Naflastúfur



Í dag var góður dagur. Fyrst gubbaði sá litli yfir öxlina og bakið á mömmu sinni og þegar hún var að skipta um bleyju þá frussaði hann kúk yfir magann á henni. Þrennunni náði hann svo aðeins seinna þegar hann pissaði yfir mömmu sína, rúmið sitt og sig sjálfan í einni bunu... geri aðrir betur. Svo þegar Sólveig var að þrífa þetta allt saman þá rakst hún í naflastúfinn þannig að hann datt af. Fullkominn endir á spennandi degi nýbakaðra foreldra.

7 Kveðjur:

Anonymous Nafnlaus kvað...

babúmm
sá er duglegur
hahaha

20:15

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Til hamingju!!!!!!! Er buin ad vera netlaus lengi nuna og var ad sja drenginn fyrst nuna... Hann er algjørt krutt!!! Ædislegar myndir.
Bestu kvedjur til ykkar fra okkur i Bergen

21:01

 
Blogger .:Eyjan kvað...

Svona á að fara að þessu!
Hann er alger snúlli:)

21:10

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

hann á ekki langt að sækja kúka og prumpubrandara:)
mér finnst hann allavega bara fyndinn, kannski mæður vaxi upp úr endaþarmsskeiðinu þegar börnin koma í heiminn???

22:10

 
Blogger laugalauga kvað...

hann fær 12 stig á eurovisiondeiginum;)

11:50

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Elsku Sólveig og Georg, innilega til hamingju með litla! :-)Algjör dúlla auðvitað! Gangi ykkur vel!
Kv. Auður laugalína

15:19

 
Blogger 5200 kvað...

0824jejeair jordan future homme Des lignes New Balance 446 Chaussures de vêtements urbains, comme la gamme Sean John de P Diddy, ainsi que 2015 nike air max huarache blanc Rocawear de Damon Dash et Jay-Z, juste une autre adidas zx flux femme soldes star du Hip Hop, et il y a aussi adidas zx flux pas cher 39 Wu-Wear et Phat Farm de Russell Simmons. Les air jordan 3 white cement homme feuilles séchées, cependant, sont trempées dans l'eau et transformées air jordan 5 3lab5 elephant print en cataplasme, puis appliquées sur les ulcères indolents. Il chaussure running homme asics pas cher peut être intéressant d'indiquer que la vente est créée avec de femme adidas zx flux 2.0 gris noir chaussure running l'argent.

01:25

 

Skrifa ummæli

<< Home