mánudagur, maí 07, 2007

Fyrstu dagarnir heima :)



Á leiðinni út í vagninn


Ótrúlega skrítið að vera komin heim með litla krílið okkar. Finnst ennþá skrítnara að horfa á hann og að hann sé litla krílið sem ég er búin að vera með í bumbunni allann þennan tíma, sérstaklega með allt þetta hár. Annars gengur allt vel hjá okkur. Held að við séum ennþá öll að jafna okkur eftir fæðinguna, enda heljarinnar átök. Georg snýst í kringum okkur og ég staulast um. Litli er farinn að vakna sjálfur til að drekka (svona yfirleitt allavega) og er farinn að drekka mjög vel. Hann er líka búin að pissa, kúka og æla í gegnum nokkur dress af fötum, rúmið sitt og rúmið okkar þannig að það er mikið stuð hjá okkur. Fórum út í fyrsta göngutúrinn í dag, reyndar bara í kringum kollegíið og aftur heim en það var samt gott að komast aðeins út.
Förum á morgun upp á spítala í allskonar mælingar og próf sem öll nýfædd börn fara í og svo kemur hjúkkan í heimsókn, spennandi.




Pabbinn að reyna að vekja fyrir brjóstagjöf, það finnst litla ekki skemmtilegt.

9 Kveðjur:

Anonymous Nafnlaus kvað...

hæhæ og innilega til hamingju með litla prinsinn:) hann er ekkert smá sætur.. hlakka til að sjá ykkur öll þegar þið komið heim í sumar:)

15:41

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Hann er nátturulega bara rosalega sætur og yndislegur. Mér finnst mjög slæmt að geta ekki aðeins stolið honum :) Er með ykkur í anda og pakkinn farin af stað í dag.

kv. Erla móða

ps. hann gæti ekki hafa valið sér betri foreldra

16:31

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Hann er bara sætastur!!! Væri svo til í að geta knúsað hann, hlakka til að fá að gera það í sumar ;)
kv
Magnea

16:50

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Litli frændi er algjör dúlla.
Kveðja Örnólfur stóri frændi

17:14

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

æi skype

erla moda

21:10

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Til hamingju með guttann, hann er algjört augnayndi!!

kv.
Eygló

00:41

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Váááá hann er ekkert smá flottur strákur. Hjartanlega til hamingju með strákinn og gangi ykkur rosa vel :)

Kær kveðja Kristín Helga

00:48

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

ég get bara ekki hætt að skoða myndirnar af litla prinsinum.
hann er bara svo fallegur:)

11:19

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

supreme clothing
supreme new york
bape
goyard
off white hoodie
golden goose sneakers
air jordan
kyrie irving shoes
fear of god essentials
OFF-White

14:20

 

Skrifa ummæli

<< Home