föstudagur, apríl 20, 2007

helv. færeyingar

Ég og Georg sitjum undir teppi að frjósa úr kulda. Með alla glugga galopna og kveikt á hundrað ilmkertum til að reyna að svæla út viðbjóðslega lykt sem kemur inn frá færeyingunum sem búa á sama gangi. Veit ekki hvað þeir eru að elda en það lyktar verr en kæst skata, kúgaðist (í alvöru) áðan þegar ég var á leiðinni út. Fatta ekki hvernig fólk getur borðað eitthvað sem lyktar svona, fatta heldur ekki hvernig þeim dettur í hug að lofta út með því að opna út á gang og deila matarilminum með allri blokkinni. Helv. færeyingar ;)
Kv. Pirraða ólétta konan

9 Kveðjur:

Anonymous Nafnlaus kvað...

Já.. ég skil ykkur ósköp vel það býr Frakki fyrir neðan okkur og alltaf þegar hann eldar þá finnst lyktin útá götu... skelfilegt alveg. En þið látið ykkur ekki verða kalt :) kær kveðja frá Villa Rokk og Pabba Pönk :D

01:39

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Hæ bumba!! Frábær sída og gaman ad sjá allar myndirnar.. Ætla ad gera alveg eins :)) Hlakka til á sunnudag..

09:17

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

hér eru allir gluggar opnir - næstum því - en það er vegna sólar en ekki lyktar...
vona að ykkur hlýni:)Kær kveðja frá okkur í Weissensee :D

14:25

 
Blogger Unknown kvað...

HEI! af hverju ertu ekki buin ad svara mer litla klessa? eda stora klessa. eg er buin ad senda ther thokkalega nokkur e-mail. eg vil fa frettir. og hananu. bless fra keisaranum i kina

17:44

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Jæja, nú er Mary búin að eiga stelpuna. Fer þá ekki að koma að þér? Voruð þið ekki settar á svipuðum tíma?

18:55

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Hún var sett 2 maí og ég er sett 9. þannig að kannski um næstu helgi (ef ég er mjög bjartsýn).

22:31

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

hehehehe.. jamm oj færeyingar....

00:38

 
Blogger Unknown kvað...

christian louboutin shoes
hermes belt
true religion outlet store
ugg boots on sale 70% off
nike shoes
saics running shoes
ralph lauren uk
coach outlet
michael kors outlet
ralph lauren uk

00:54

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

jordan 11
bapesta
cheap jordan
yeezy 700
supreme outlet
jordans
supreme clothing
kd 15
off white hoodie
goyard

14:07

 

Skrifa ummæli

<< Home