föstudagur, mars 17, 2006

Hlutir sem ég geri þegar mér leiðist

  • nöldra
  • fæ mér að borða
  • skrifa blogg
  • horfi út um gluggann
  • vaska upp
  • hangi á msn
  • reyni að pirra Georg
  • Hringi í Georg til að nöldra
  • Leyfi pabba að pirra mig á msn
  • skoða blogg hjá fólki sem ég þekki ekki
  • drekk helling af vatni svo ég þurfi oft að pissa
  • sný mér í hringi
  • kíkji á tölvupóstinn minn á 10 mín. fresti
  • sendi tilgangslaus sms
  • fletti námsbókunum fram og tilbaka án þess að lesa neitt
  • raða í ískápnum
  • opna og loka skápum
  • vökva blómið mitt
  • fara út í búð

og allt þetta er ég búin að gera í dag og skrifa lokaritgerð í leiðinni.....fjölhæf???

2 Kveðjur:

Anonymous Nafnlaus kvað...

þetta er eiginlega nákvæmlega eins og listinn minn yfir hluti sem ég geri þegar ég á að vera að læra. Sérstaklega vatnsdrykkjan. Auk þess er á mínum lista almenn tiltekt og þrif og að þvo þvott. ojá. sjaldan eins skemmtilegt og einmitt í próflestri. þetta er nátlla útí hött!
hahahah

18:09

 
Blogger yanmaneee kvað...

jordans
adidas zx flux
100% real jordans for cheap
curry 7 shoes
yeezy shoes
mbt
adidas ultra
a bathing ape
yeezy boost 350 v2
kyrie shoes

19:42

 

Skrifa ummæli

<< Home