fimmtudagur, ágúst 17, 2006

Stóra systir



Síðasti gestur sumarsins farin. Þótt að íbúðin sé lítil finnst mér alltaf svolítið tómlegt þegar gestir fara. Ingvar, bróðir minn er búin að vera í heimsókn í viku. Við gerðum ýmislegt túristalegt eins og að rölta niður Istegade að skoða hórur og dópsala og fara á erótíska safnið. Svo fórum til Malmö og í kanaltúr um Köben. Í bíó á danska gelgjumynd og héldum upp á afmælið hans Ingvars með köku og bjór.

Fórum líka niður í bæ á djammið og stóra systir alltaf að passa upp á litla barnið og elti hann út um allt, ótrúlega lúmsk samt........var líka með einhverjar áhyggjur af honum þegar við vorum að hjóla, átti erfitt með að hjóla og fylgjast með honum að hjóla fyrir aftan mig þannig að ég kom upp svona bjöllukerfi. Þegar ég hringdi bjöllunni átti hann að hringja sinni og þá vissi ég að það væri allt í lagi, þetta fannst mér alveg svakalega góð hugmynd en honum ekki eins góð....skrítið!

Meira um vinnu- og íbúðarmál síðar.

6 Kveðjur:

Anonymous Nafnlaus kvað...

Mikið er gott að eiga stórar systur og þið hafið skemmt ykkur vel kanski verið oþarflega passasöm

21:26

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

æ þú ert svo yndisleg systir mín. ég held að svona bjöllukerfi til að vera viss um brósa sé eitthvað sem bara þú mundir taka uppá :)hahahhaahahahaha ...fyndin.
vonandi fæ ég að hitta þig bráðum og þá geturðu gert einhverjar svona mjög rökréttar og tilgangsmiklar reglur

21:41

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Eg hef nu verid vakandi halfa nottina og hringt i öll hugsanleg gsm numer ad bida eftir ther i köben..... um arid :) litil systkini eru villidyr i edli sinu, madur veit aldrei.
Kannski hefdi Ingvar reynt ad stinga hana af, eda fest ermina i girunum, eda ekki getad bremsad og hjolad a staur, eda fengid illt i rassinn af sætinu, eda fengid flugu i augad eda eitthvad...

Earl

12:42

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

og thegar eg skrifa bida eftir ther, tha er eg ad tala um ingu laru

12:42

 
Blogger 5200 kvað...

0824jejeLa semelle nike air jordan 1 retro high og clover intermédiaire en Phylon avec l'unité Nike Zoom donnera un cortez leather nike femme pied bien amorti. Des publications sur les chaussures de sport nike air max pas cher traitements récents, la chirurgie oculaire au Texas asics chaussures de running gel zaraca femme LASIK, ainsi que la tendance actuelle nike air max 1 essential suede sur le terrain peuvent être obtenues asics baskets cuir tozado le femme pour ces ophtalmologistes à parcourir. Il adresse postale nike france est tout simplement inégalé des baskets de sa catégorie.

01:24

 
Blogger yanmaneee kvað...

kyrie 4 shoes
russell westbrook shoes
jordan sneakers
yeezy shoes
air jordan
moncler outlet
kobe 11
converse outlet
longchamp handbags
retro jordans

19:42

 

Skrifa ummæli

<< Home