sunnudagur, maí 04, 2008

1 árs prins

Já litli prinsinn okkar varð eins árs í dag. Húrrahúrra. Við fórum út í bakarí í morgun og afi fékk síðan að passa hann meðan við vorum að stússast. Arnór fékk að smakka sína fyrstu kókamjólk og þambaði hana í einum teyg. Ég vissi ekki einu sinni að hann kynni að drekka úr röri....Ætlaði að fá sopa hjá honum en hann æpti á mig og hélt áfram að þamba.
Nú er klukkan orðin margt og Georg var að klára að flísaleggja baðgólfið. Ég var að baka súkkulaðibitakökur, setti óvart fjórfalt magn af salti og missti eina plötuna í gólfið, stuð hjá okkur. Vona að enginn taki eftir saltbragðinu á morgun :) Afmælispartý á morgun og vonandi getum við sett inn myndir bráðlega.

13 Kveðjur:

Anonymous Nafnlaus kvað...

Iss já já Georg flísalagði baðið EINN pff... en til hamingju með hlunkinn :D

-Villi sársvekktur

02:01

 
Blogger Sólveig og Georg kvað...

Heyrðu ég veit ekki betur en að þú hafir stungið af þegar mesta erfiðið byrjaði!!!! Nei án gríns þá takk kærlega fyrir hjálpina í kvöld Villi, Þú færð súkkulaðibitaköku að launum á morgun ;-)

02:55

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Til hamingju með afmælið í gær elsku Arnór Breki.
Þú færð afmælispakka frá okkur í sumar...vonum að þú getir beðið.
Kv. Ásta og Sunna Dís

10:24

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Góða skemmtun í afmælispartíinu í dag,
OG

♥♥afmælisknús til Arnórs Breka♥♥

10:44

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Til hamingju með afmælið elsku Arnór Breki, vildi vera með í partýinu, verð það bara næst.

Afmæliskveðja frá ömmu í sveitini.

11:29

 
Blogger laugalauga kvað...

takk fyrir afmælispartýið.... já og geggjaðar súkkulaðibitakökur... át kannski aðeins of margar......;)
kv andrea

22:23

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Til lukku med afmælið! Finnst það hafa verið í gær að ég kom (nýólétt) í heimsókn á Amager og sá litla krílið... time flies.
kkv Inga og Niclas og Nói

19:53

 
Blogger Freyja Rut kvað...

Til hamingju með strákinn :)
Kv, Freyja (Reykhólakennari)

15:26

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Aftur til hamingju með daginn sæti Arnór! Það var æði í afmælinu þínu, verst að Sindri var veikur :( En við hittumst nú vonandi bráðum og þá getiði leikið og gaurast saman :)

kv. Jóhanna, Steini og Sindri

23:15

 
Blogger Elva kvað...

Til hamingju med afmælid! Hlytur ad hafa verid mikid stud. Alltaf gaman ad fylgjast med hérna á blogginu :) Kv frá thríeykinu á østerbro

20:23

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

afsakið seinkun á afmæliskveðju...betra seint en aldrei.... en til hamingju með arnór breka.... ég kem í heimsókn með kókómjólk hehe.....kveðjur frá köben, halldóra og ísold

11:33

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

Innilega til hamingju elsku Arnór Breki ásamt foreldrum þínum með 1 árs afmælið - mikið hefði nú verið gaman að komast í ammælið ;), vonandi fáum við að sjá þig fljótlega.

Bestu kveðjur frá Hafdísi og Óla

19:28

 
Blogger yanmaneee kvað...

air max 270
golden gooses
golden goose sneakers
golden goose
nike sneakers
balenciaga triple s
yeezy boost
longchamp
yeezy boost 350
hermes handbags

20:02

 

Skrifa ummæli

<< Home