mánudagur, janúar 09, 2006

Kamar til láns......

Gaman að vera á fjölþjóðlegu kollegíi, þar sem 1/10 færeysku þjóðarinnar er búsettur á!!!!!! Hef ákveðið að Georg eigi að eignast færeyskan vin því að það væri hægt að eiga svo skemmtilega misskilið samtal við hann........þá er um að gera að hanga á barnum þar sem er skrítið fólk og vondur bjór.

Vorum annars að kaupa okkur svefnsófa í ikea, hann er ekkert sérstaklega fallegur, við keyptum bara ódýrasta. Við keyptum okkur líka sjónvarpsskáp undir sjónvarpið sem að við eigum ekki.

Erum annars að fara á Mon á fimmtudagsmorgun að hjálpa systur minni að flytja..............

1 Kveðjur:

Anonymous Nafnlaus kvað...

Vid fáum brádum huuund. Eda Örnólfur. Thid verdid ad koma skoda hana, hun er bara pinu hvolpur og kemur i naestu viku.
Kv. Berlin

18:18

 

Skrifa ummæli

<< Home