fimmtudagur, janúar 18, 2007

rigning....

Það er búið að rigna á hverjum degi síðan við komum heim, eiginlega komin með nóg af rigningu, væri alveg til í smá snjó í staðinn. Fór í göngutúr með vöggubörnunum mínum um daginn og við tíndum gul blóm, fyrstu vorblómin. Held samt að veturinn eigi ábyggilega eftir að koma. Jább. Annars bara allt gott að frétta af okkur. Er komin á 25 viku, með öðrum orðum 6 mánuði, ekkert smá fljótt að líða. Krílið er bara í góðu stuði, farið að vakna við hljóð (held ég allavega) fæ a.m.k stundum kung fu spörk í bumbuna þegar krakkarnir á leikskólanum eru að öskra eða grenja. Það sefur samt mest allan daginn (held ég) og er síðan í miklu stuði á kvöldin, brjálað partý í bumbunni eftir kvöldmat.

2 Kveðjur:

Anonymous Nafnlaus kvað...

ég sakna ykkar dúllufólk, og bumbunnar líka.

22:08

 
Anonymous Nafnlaus kvað...

hey, það snjóaði fyrir utan gluggan minn áðan....

14:05

 

Skrifa ummæli

<< Home